Það hlaut að koma að því að sumarfríi lyki og hversdagurinn tæki við. Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá hef ég verið í litlu sem engu blogg-stuði upp á síðkastið, en ég held að það sé einfaldlega vegna þess að ég hef verið of löt til þess. Við hjónin höfðum það svo rosalega gott á Rhodos að ég var geispandi í marga daga á eftir. Maður er ekki vanur svona aðgerðarleysi og rólegheitum...en mikið var það næs! Maturinn, veðrið og hótelið var frábært og ferðin í heild eins og best verður á kosið. Við skruppum í tvær skiðulagðar ferðir Heimsferða, annars vegar var miðbær Rhodos skoðaður og hins vegar var keyrt yfir á vesturströndina þar sem afar fallegan bæ er að finna, Lindos. Á vesturströndinni er heitara en autanmegin, þar sem við vorum, og Lindos var skoðaður á heitasta tíma dagsins, eða í um 40 stiga hita. Í hitanum gengum við upp 300 tröppur til að bera Aþenuhofið augum, eða öllu heldur það sem eftir er af því. Þetta var frábær ferð, en hitinn aðeins of mikill fyrir minn smekk. En það er eki ódýrt fyrir Íslending að versla þar, eða annarsstaðar þar sem evran er, því hún fór upp í 128 á tímabili.... og fyrir ári var hún um 80-90 :( sussusvei!
Hér koma nokkrar myndir úr honnímúninu....
Sú fyrsta er tekin við einn innganginn í gamla bæinn í Rhodos. Mynd 2: Útsýnið yfir hluta af Lindos eftir að 300 tröppur höfðu verið gengnar. Mynd 3: Hjónin alsæl rétt áður en lagt var af stað heim á klakann.


Nú eru stelpurnar byrjaðar í leikskólanum aftur eftir sumarfrí og hún Elín mín hefur tekið þvílíkan þroskakipp og vældi bara ekkert við aðskilnaðinn í morgun...úff mikill léttir. Manni finnst eins og maður sé versta mamma í heimi þegar hún orgar svona í upphafi dags, þannig að þetta er allt á réttri leið.Svo var minn fyrsti dagur í dag í vinnunni minni sem kennari. Jájá, það kom auðvitað að því líka. Ég er mjög spennt og hlakka til að takast á við þetta ábyrga hlutverk sem það er að vera dönsku og íslenskukennari í 8. bekk. Andinn á vinnustaðnum er mjög góður, sem er afar mikilvægt á vinnustað sem þessum, sem og auðvitað öllum vinnustöðum. Síðan í byrjun september bætist námið við, en ég er svo heppin að eiga einn frídag í viku í kennslunni, sem ég mun nýta mér vel í náminu.
Annars er beðið eftir litlu börnunum sem eiga að fara að fæðast. Reyndar sveik hún Hildur mig því hún var sett á afmælisdaginn minn 13/8, en ekkert gerist enn..... Síðan er hún Ibba mín sett 4. sept og hún er svo yndisleg og þau bæði að leyfa mér að vera viðstödd þegar kraftaverkið gerist, vá hvað ég hlakka til. Þá er bara að vona að ég frjósi ekki og geri heldur eitthvað gagn..hehe
Svona í lokin sýni ég ykkur aðeins fleiri myndir frá brúðkaupsdeginum sem hann Hlynur tók. Við erum himinlifandi með myndirnar....Takk Takk Takk Hlynsi :)




Læt þetta duga að sinni...
Kv, Íris
Ingen kommentarer:
Send en kommentar